Vínráðgjafinn kynnir að þessu sinni Gato Negro Cabernet Sauvignon.
Gato Negro Cabernet Sauvignon er frábært rauðvín sem á ættir sínar að rekja til Chile. Vínið kemur frá Maipo dalnum sem er þekktur fyrir sín bragðgóðu rauðvín.
Rauðvínið er mjög bragðmikið, með góðu taníni og ríkt af ávöxtum. Ferskt og þroskuð ber eins og sólber og brómber gera gera það að verkum að lyktin er ómótstæðileg. Liturinn er dökk rauður með fallegum fjólubláum bláma.
Gato Negro Cabernet Sauvignon kemur í hentugri 3 lítra öskju. Hver askja inniheldur sama magn og í 4 venjulegum léttvínsflöskum og heldur gæðum vínsins í 5-6 vikum eftir að askjan hefur verið opnuð.
Askjan af Gato Negro Carbernet Sauvignon er á 3.490 kr sem samsvarar því að 75 cl. flaska komi út á 872,- kr og gerist verð ekki betra á rauðvíni í ÁTVR.
Hægt er að lesa meira um vínið á heimasíðu framleiðandans:
www.sanpedro.cl
|